Fótbolti

Jafnt hjá Swansea og Wigan tapaði

Úr leik Swansea og Kuban í kvöld.
Úr leik Swansea og Kuban í kvöld.
Swansea missti niður unnin leik í Evrópudeildinni í kvöld. Líðið fékk þá á sig jöfnunarmark í uppbótartíma gegn Kuban Krasnodar.

Klaufalegt hjá Swansea sem var manni fleiri síðasta stundarfjórðunginn.

Swansea á toppi riðilsins með átta stig en Kuban í því neðsta með tvö.

Wigan sótti ekki gull í greipar Rubin Kazan og tapaði 1-0 í Rússlandi. Rubin komið áfram í næstu umferð eftir sigurinn en Wigan er enn í öðru sæti riðilsins.

Úrslit:

Kuban Krasnodar-Swansea  1-1

0-1 Wilfried Bony (9.), 1-1 Ibrahima Balde (90.+2).

Rubin Kazan-Wigan  1-0

1-0 Oleg Kuzmin (22.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×