Bíó og sjónvarp

Samuel L. Jackson í endurgerð RoboCop

Ný stikla fyrir endurgerð Sony af kvikmyndinni RoboCop er nú komin út.

Meðal leikara í myndinni eru Michael Keaton og Jay Baruchel. Samuel L. Jackson stelur þó senunni, en hann leikur persónu sem heitir Pat Novak.

Jackson hefur líkt persónunni Pat Novak við sambland af hægriöfgamanninum Rush Limbaugh og eins helsta mannréttindafrömuðar bandarísku baptistakirkjunnar, Al Sharpton.

Hér að neðan er hægt að sjá stikluna.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×