Bíó og sjónvarp

Robert DeNiro og Reese Witherspoon í samstarf

Reese Witherspoon og Robert De Niro
Reese Witherspoon og Robert De Niro AFP/NORDICPHOTOS
Robert DeNiro og Reese Witherspoon koma til með að leika aðalhlutverkin í nýjustu kvikmynd Nancy Meyers, The Intern.

Nancy Meyers er þekktur handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi í Hollywood, en hún hefur komið að kvikmyndum á borð við The Holiday, Something's Gotta Give, The Parent Trap og It's Complicated.

Meyers kemur til með að leikstýra The Intern, en myndin fjallar um eiganda tísku-vefsíðu, leikna af Reese Witherspoon, sem ræður til sín starfsnema í eldri kantinum, en hann verður leikinn af Robert De Niro.

Með þeim tekst mikill vinskapur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×