Bíó og sjónvarp

Heimildamynd um Davíð Oddsson í bíó annað kvöld

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Í myndinni er rætt við Björn Bjarnason, Guðna Ágústsson, Hannes Hólmstein Gissurarson, Illuga Gunnarsson og Kjartan Gunnarsson.
Í myndinni er rætt við Björn Bjarnason, Guðna Ágústsson, Hannes Hólmstein Gissurarson, Illuga Gunnarsson og Kjartan Gunnarsson.
Heimildarmynd um Davíð Oddsson sem ber nafnið Þúsund stormar verður sýnd í Bíó Paradís annað kvöld. Í myndinni er rætt við nokkra samferðamenn Davíðs auk þess sem sýnd eru brot úr upptökum Sjónvarpsins af honum.

Rafn Steingrímsson og Stefán Gunnar Sveinsson ritstýrðu myndinni. Rafn segir hugmyndina að henni hafa kviknað í stjórnartíð Ólafs Nielsen, fyrrverandi formanns SUS en hann hafi tekið við verkefninu síðar. „Þá varð þetta aðeins stærra í sniðum og myndin varð smám saman efnismeiri.“

Í myndinni er rætt við Björn Bjarnason, Guðna Ágústsson, Hannes Hólmstein Gissurarson, Illuga Gunnarsson og Kjartan Gunnarsson.

Rafn segir ástæðuna fyrir því að ekki er rætt við neinar konur í myndinni að engin þeirra sem þeir höfðu samband við hafi verið til taks þegar framleiðslan var í gangi. Hann segir það miður. Hann segir þó að eðli málsins samkvæmt hafi færri konur en karlar komið til greina, þar sem í stjórnartíð Davíðs hafi til dæmis verið mun fleiri karlráðherrar en kvenráðherrar. Það sé ekki veruleiki sem hægt sé að breyta eftir á.

Myndin verður sýnd klukkan 20 annað kvöld og eftir sýningu mun Hannes Hólmstein svara spurningum.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×