Bíó og sjónvarp

Ísland öruggt að mati South Park

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Cartman stingur upp á Íslandi sem felustað.
Cartman stingur upp á Íslandi sem felustað.
Ísland er fýsilegur kostur sem skjól í baráttu gegn uppvakningum að mati Erics Cartman í South Park. Þetta kemur fram í nýjasta þætti seríunnar sem frumsýndur var í gær og ber nafnið World War Zimmerman.

Kvikmyndin World War Z með Brad Pitt í aðalhlutverki er fyrirmynd þáttarins og þurfa persónur hans að flýja uppvakninga. Cartman stingur upp á Íslandi sem felustað en tillaga hans er felld.

Horfa má á þáttinn í heild sinni á vefsíðunni South Park Studios.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×