Fótbolti

Fàbregas tryggði Barcelona sigur í Glasgow

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
Cesc Fàbregas skoraði sigurmark Barcelona í kvöld þegar liðið sótti þrjú stig til Glasgow með því að vinna 1-0 sigur á Celtic í leik liðanna í H-riðli í Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Barcelona er með fullt hús eftir tvo fyrstu leiki sína en liðið vann 4-0 heimasigur á Ajax í fyrstu umferðinni.

Barcelona-liðið lék án Argentínumannsins Lionel Messi sem meiddist í leik liðsins um síðustu helgi og lengi vel leit út fyrir að Börsungar ætluðu ekki að ná því að skora. Liðið náði ekki að brjóta ísinn fyrr en sautján mínútum eftir að Celtic missti Scott Brown af velli með rautt spjald.

Skömmu áður en Fàbregas skoraði sigurmarkið þá fékk Celtic tvö góð færi með stuttu millibili. Fyrst varði Victor Valdes frábærlega frá James Forrest og svo skallaði Charlie Mulgrew framhjá af stuttu færi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×