Fótbolti

Zlatan með tvö mörk fyrir PSG - Úrslitin í Meistaradeildinni í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimović.
Zlatan Ibrahimović. Mynd/AP
Franska liðið Paris Saint-Germain er í miklum ham í meistaradeildinni en liðið er með sex stig og sjö mörk eftir fyrstu tvo leikina. PSG vann 3-0 sigur á Benfica í kvöld í uppgjöri efstu liða riðilsins. PSG er eitt af þremur liðum í riðlum A til D sem er með fullt hús eftir tvær umferðir en hin eru Bayern München og Real Madrid. Öll hafa þessi þrjú lið sýnd snilldartilþrif í fyrstu tveimur umferðum keppninnar.

Svíinn Zlatan Ibrahimović skoraði tvö mörk fyrir Paris Saint-Germain í kvöld og franska liðið afgreiddi leikinn strax á fyrsta hálftíma leiksins með því að skora þá öll þrjú mörkin sín. Benfica vann fyrsta leikinn sinn en átti ekki möguleika í kvöld.  

Didier Drogba kom Galatasaray yfir á móti á Juventus í fyrsta leik tyrkneska liðsins undir stjórn Roberto Mancini en liðin sættust á endanum á 2-2 jafntefli.

Konstantinos Mitroglou, 25 ára grískur framherji, skoraði þrennu fyrir Olympiakos í 3-0 útisigri á Anderlecht í Belgíu í kvöld en liðin eru með Paris Saint-Germain í riðli.

Jens Hegeler tryggði Bayer Leverkusen 2-1 heimasigur á Real Sociedad með marki beint úr aukaspyrnu á annarri mínútu í uppbótartíma.

Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk þegar Real Madrid vann 4-0 sigur á liði Ragnars Sigurðssonar og Rúriks Gíslasonar á Santiago Bernabéu í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld. Ronaldo lék þarna sinn hundraðasta Evrópuleik og hélt upp á það með stæl en Ángel di María skoraði einnig tvennu fyrir spænska liðið í kvöld. Leikmenn Real Madrid hafa skorað tíu mörk í tveimur fyrstu leikjum sínum í meistaradeildinni í vetur.

Evrópumeistarar Bayern München sýndu allar sínar bestu hliðar í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið fór illa með enska liðið Manchester City í 3-1 sigri á Etihad-leikvanginum í Manchester-borg.

Manchester United er ennþá á toppi síns riðils í Meistaradeildinni í fótbolta þrátt fyrir að hafa séð á eftir tveimur stigum í kvöld. Manchester United var yfir í 58 mínútur á móti Shakhtar Donetsk í Úkraínu en varð að sætta sig á endanum við 1-1 jafntefli.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir úrslit og markaskora í öllum leikjum kvöldsins en það er hægt að nálgast frekari upplýsinga um leikina með því smella á þá í Boltavaktinn sem er aðgengileg hér neðst á síðunni.

Mynd/NordicPhotos/Getty
Úrslit og markaskorar í Meistaradeildinni í kvöld:

A-riðill

Shakhtar Donetsk - Manchester United 1-1

0-1 Danny Welbeck (18.), 1-1 Taison (76.)

Bayer Leverkusen - Real Sociedad 2-1

1-0 Simon Rolfes (45.), 1-1 Carlos Vela (52.), 2-1 Jens Hegeler (90.)

B-riðill

Real Madrid - FC Kaupmannahöfn 4-0

1-0 Cristiano Ronaldo (21.), 2-0 Cristiano Ronaldo (65.), 3-0 Ángel di María (71.), 4-0 Ángel di María (90.+1)

Juventus - Galatasaray 2-2

0-1 Didier Drogba (36.), 1-1 Arturo Vidal (78.), 2-1 Fabio Quagliarella (87.), 2-2 Umut Bulut (88.)

C-riðill

Anderlecht - Olympiakos 0-3

0-1 Konstantinos Mitroglou (17.), 0-2 Konstantinos Mitroglou (56.), 0-3 Konstantinos Mitroglou (72.)

Paris Saint-Germain - Benfica 3-0

1-0 Zlatan Ibrahimović (5.), 2-0 Marquinhos (25.), 2-0 Zlatan Ibrahimović (30.)

D-riðill

Manchester City - Bayern München 1-3

0-1 Franck Ribéry (7.), 0-2 Thomas Müller (56.), 0-3 Arjen Robben (59.), 1-3 Álvaro Negredo (80.)

CSKA Moskva - Viktoria Plzen 3-2

0-1 František Rajtoral (4.), 1-1 Zoran Tošić (19.), 2-1 Keisuke Honda (29.), 3-1 Sjálfsmark (78.), 3-2 Marek Bakos (90.).       




Fleiri fréttir

Sjá meira


×