Harmageddon

Haim systur á toppi breska breiðskífulistans

Ómar Úlfur skrifar
Haim systur eru á toppnum í Bretlandi
Haim systur eru á toppnum í Bretlandi
Systrasveitin Haim kom plötunni sinni, Days Are Gone,  á topp breska breiðskífulistans um helgina. Sveitin hélt ofurpopparanum Justin Timberlake frá toppnum en plötunni hans, The 20/20 Experience hafði verið spáð toppsætinu. Hefði það verið fjórða platan hans í röð sem hefði náð toppnum í Bretlandi. 

Systurnar Este, Danielle og Alana Haim stofnuðu sveitina í Los Angeles árið 2006 en þær höfðu alist upp við amerískt rokk og ról og americana sem að foreldrar þeirra spiluðu stanslaust á heimilinu. 

Árið 2012 gaf Haim út Ep plötuna Forever sem vakti mikla athygli og kom sveitin m.a frá á SXSW tónlistarhátíðinni og Icelandairwaves það árið. Haim nældi sér sömuleiðis í plötusamning við Polydor og fyrsta stóra platan kom svo út í seinustu viku. Ágætis byrjun hjá Haim.

Hér fyrir neðan má sjá myndband frá tónleikum Haim á Icelandairwaves árið 2012








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.