Körfubolti

Óvíst er hvenær Kobe snýr aftur á völlinn

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Kobe Bryant
Kobe Bryant Mynd/AP
Kobe Bryant var viðstaddur í æfingarstöð Los Angeles Lakers í gær þegar fyrstu æfing liðsins fyrir komandi tímabil fór fram. Kobe sleit hásin seint á síðasta tímabili og hefur mikið verið rætt um vilja hans til að snúa aftur sem fyrst. Þratt fyrir að endurhæfingin gangi vel byrjar hann ekki að æfa strax með liðinu.

Meiðsli Bryant í fyrra var rothöggið sem sló Lakers úr úrslitakeppninni í fyrra eftir skelfilegt tímabil. Mikið hafði verið rætt um möguleika liðsins eftir að hafa fengið Steve Nash og Dwight Howard til liðsins en liðið náði aldrei takt. Eftir að hafa náð að komast bakdyramegin í úrslitakeppnina var liðinu sópað út af San Antonio Spurs sannfærandi.

Pau Gasol er að jafna sig eftir aðgerð í sumar, Heimsfriðurinn hélt til New York og þá ákvað Dwight Howard í sumar að taka hæfileika sína til Houston. Það verður spennandi að sjá hvernig hið nýja Lakers lið mun líta út og hvort Kobe verði klár hálfu ári eftir meiðslin. Kobe segist ekki horfa á ákveðna tímasetningu en útilokaði ekki að vera með í fyrsta leik tímabilsins eftir mánuð.

„Mér líður bara nokkuð vel, við erum ekkert að skoða hvar ég ætti að vera samkvæmt einhverri tímatöflu. Ég verð að passa mig og nálgast þetta rétt, núna snýst þetta um að vera á réttum hraða og smátt og smátt auka við sig. Aðgerðin er búin og mér líður eins og það erfiðasta sé búið, núna er að komast í stand. Um leið og ég fer aftur út á völl verð ég tilbúinn, það er langt síðan ég spilaði alveg heill," sagði Bryant.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×