Bíó og sjónvarp

Brad Pitt samþykkir Hunnam

Brad Pitt er ánægður með ráðningu Hunnam sem Grey.
Brad Pitt er ánægður með ráðningu Hunnam sem Grey. Nordicphotos/getty
„Ég þekki Charlie, hann er frábær náungi. Hann er einn af þeim sem pælir fyrst og fremst í að koma sögunni á framfæri,“ sagði leikarinn Brad Pitt um kollega sinn, Charlie Hunnam, í viðtali við Access Hollywood. Sá síðarnefndi hreppti hlutverk Christian Grey í kvikmynd sem byggð verður á metsölubókinni Fifty Shades of Grey eftir rithöfundinn E.L. James.

Pitt virðist nokkuð kátur með ráðningu Hunnam í hlutverk Grey og í vonar að hann komi til með að slá í gegn.

Pitt og Hunnam þekkja svolítið til hvors annars því framleiðslufyrirtæki Pitts, Plan B, keypti nýverið handrit að vampírumyndinni Vlad, en Hunnam er höfundur þess.

Stutt er síðan tilkynnt var að Hunnam og Dakota Johnson, dóttir Don Johnson og Melanie Griffith, mundu fara með hlutverk Christians Grey og Anastasiu Steele.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×