Fótbolti

Ramsey skorar enn - Arsenal vann í Marseille

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
Theo Walcott og Aaron Ramsey tryggðu Arsenal 2-1 útisigur á franska liðinu Marseille í fyrsta leik liðanna í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld en þetta var frábær sigur fyrir lærisveina Arsene Wenger.

Það var lítið um hættulegt færi í fyrri hálfleiknum,, Arsenal var meira með boltann en Marseill náði fleiri skotum. Það var hinsvegar meira fjör í seinni hálfleiknum og Kieran Gibbs bjargaði á marklínu áður en Arsenal komst yfir.

Theo Walcott kom Arsenal í 1-0 á 65. mínútu eftir að varnarmönnum Marseille mistókst að koma fyrirgjöf Kieran Gibbs almenninlega frá. Walcott fékk boltann og tók hann viðstöðulaust á lofti og afgreiddi hann í fjærhornið.

Aaron Ramsey hefur raðað inn mörkum á tímabilinu og það sjötta kom á 84. mínútu eftir lagleg tilþrif hjá kappanum sem er svo sannarlega í formi lífsins þessa dagana.

Aaron Ramsey fékk dæmt á sig víti í uppbótartíma og Jordan Ayew minnkaði muninn úr vítasyrnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×