Enski boltinn

Özil orðaður við Arsenal

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mesut Özil í síðasta leik sínum með Real Madrid
Mesut Özil í síðasta leik sínum með Real Madrid Mynd/Gettyimages
Sífellt heyrist hærri raddir að Mesut Özil, leikmaður Real Madrid sé á leiðinni til Arsenal. Óvissa er um framtíð Özil sem er 24 ára landsliðsmaður Þýskalands.

Özil sem spilar fyrir aftan fremstu menn hefur verið orðaður við brottför frá Madrid eftir komu Isco til Real Madrid. Koma Gareth Bale reyndist vera olía á eldinn því fjölmiðlar erlendis keppast um að orða Özil við brottför.

Talið er að hann megi fara fyrir 40 milljónir evra og eru orðrómar um að Arsenal sé komið langt í samningarviðræðum við Real um kaup á Özil. Hann yrði þá dýrasti leikmaður í sögu Arsenal en þar situr efstur á lista Sylvian Wiltord frá árinu 2000. Talið er að Arsene Wenger sé að fara að blanda sér í baráttuna um eftirsóttustu bitana.

Özil byrjaði síðast inná hjá Real á mánudaginn en var skipt snemma útaf og fór rakleiðis inn í búningsklefa. Özil sat svo á bekknum í 3-0 sigri Real á Athletic Bilbao í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×