Bíó og sjónvarp

Djúpið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið í Djúpinu.
Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið í Djúpinu.
Djúpið, kvikmynd Baltasars Kormáks, hefur verið tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Alls eru tilnefningarnar fimm og koma myndirnar frá Íslandi, Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi.

Sérstök dómnefnd valdi framlag Íslands úr flokki íslenskra kvikmynda sem voru frumsýndar í kvikmyndahúsum hérlendis frá 1. september 2012 til 31. ágúst 2013. Handritið skrifaði Baltasar ásamt Jóni Atla Jónassyni og framleiðendur eru auk Baltasars, Agnes Johansen og Egil Ødegård.

Sigurvegari Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs, sem hlýtur að launum 350 þúsund danskar krónur, eða um 7.5 milljónir íslenskra króna, er sögð í tilkynningu eiga að vera framúrskarandi hvað varðar listrænan frumleika og flétta saman á fágaðan máta undirstöðuatriði kvikmyndalistarinnar svo úr verði sannfærandi heild.

Að mati dómnefnda hafa þær fimm myndir sem tilnefndar eru að þessu sinni til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs einmitt þessa kosti til að bera, en myndirnar fimm eru:

JAGTEN (THE HUNT) - Danmörk

Kvikmynd eftir Thomas Vinterberg (leikstjóri), Tobias Lindholm og Thomas Vinterberg (handritshöfundur) and Sisse Graum Jørgensen og Morten Kaufmann (framleiðendur).

KERRON SINULLE KAIKEN (OPEN TO ME) - Finnland

Kvikmynd eftir Simo Halinen (leikstjóri), Simo Halinen (handritshöfundur) og Liisa Penttilä (framleiðandi).

DJÚPIÐ (THE DEEP) - Ísland

Kvikmynd eftir Baltasar Kormák (leikstjóri), Jón Atla Jónasson, Baltasar Kormák (handritshöfundar) og Agnesi Johansen og Baltasar Kormák (framleiðendur).

SOM DU SER MEG (I BELONG) - Noregur

Kvikmynd eftir Dag Johan Haugerud (leikstjóri), Dag Johan Haugerud (handritshöfundur) and Yngve Sæther (framleiðandi).

ÄTA SOVA DÖ (EAT SLEEP DIE) - Svíþjóð

Kvikmynd eftir Gabriela Pichler (leikstjóri), Gabriela Pichler (handritshöfundur) and China Åhlander (framleiðandi).

Tilkynnt verður um sigurvegarana í ár þann 30. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×