Fótbolti

Hólmfríður framlengdi samning sinn við Avaldsnes

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hólmfríður skrifar undir samninginn í gær.
Hólmfríður skrifar undir samninginn í gær. Mynd/Heimasíða Avaldsnes
Landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir verður áfram leikmaður norska félagsins Avaldsnes. Kantmaðurinn skrifaði undir samning út leiktíðina árið 2014 í gær.

Hólmfríður er næstmarkahæsti leikmaður Avaldsnes í deildinni með fimm mörk. Hún spilaði með liðinu í næstefstu deild í fyrra er liðið vann sig upp í deild þeirra bestu. Þar situr liðið í 3. sæti eftir mikla velgengni undanfarnar vikur en liðið hefur auk þess styrkt sig mikið og eru sautján erlendir leikmenn í herbúðum liðsins.

Avaldsnes er auk þess komið í undanúrslitin í bikarnum þar sem liðið mætir Vålerenga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×