Körfubolti

Hrinti óléttri kærustunni

Ty Lawson.
Ty Lawson.
Eins og Vísir greindi frá í gær þá var Ty Lawson, leikstjórnandi Denver Nuggets, handtekinn um helgina ásamt kærustunni sinni en þá höfðu þau verið að slást.

Smáatriðin eru nú farin að leka út en kærastan, Ashley Pettiford, segir að Lawson hafi hrint henni. Hún er ólétt að barni þeirra.

Lætin byrjuðu þegar Pettiford kom að Lawson í símanum við aðra stúlku. Hún fór þá að pakka í tösku og ætlaði sér út. Þá á Lawson að hafa hrint henni. Hann segist hafa verið að ýta henni til hliðar.

Símar parsins fengu að finna fyrir því í látunum. Sími Lawson eyðilagðist er hún kastaði honum í vegginn. Lawson gekk ekki eins vel að eyðileggja hennar síma. Ekki dugði að henda honum í vegginn og því lét Lawson símann undir vatnskrana.

Bæði eiga þau von á ákærum fyrir litla hluti.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×