Harmageddon

Orðljótur rappari úr Garðabænum

Úr myndbandi við lagið Ég er Mörður.
Úr myndbandi við lagið Ég er Mörður.
Rapparinn Egill Friðrik kallar sig Orðljótan. Hann er úr Garðabænum og lauk nýverið við sitt fyrsta myndband við lagið Ég er Mörður.

Egill kom í heimsókn til Harmageddon og spjallaði um nýja lagið og myndbandið. Þar fékk hann vinkonur sínar til að mæta í bíkíní og vini til að vera með sér í almennum vitleysisgangi.

„Það er mikil eftirspurn eftir rappi á íslensku,“ segir Egill en myndbandið má sjá hér fyrir neðan. Egill hvetur fólk einnig til að kíkja á síðuna sína, facebook.com/ordljotur til að fylgjast með næstu verkefnum hjá sér.





Mest lesið




×

Mest lesið


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.