Körfubolti

James velur þrjá bestu leikmenn sögunnar

LeBron James.
LeBron James.
Besti körfuboltamaður heims í dag, LeBron James, var neyddur til þess í viðtali um daginn að nefna þrjá bestu körfuknattleiksmenn sögunnar.

Þetta var greinilega spurning sem James hafði ekki velt mikið fyrir sér áður því hann lenti í vandræðum með að svara.

Að lokum nefndi hann þó Michael Jordan, Julius Erving og Larry Bird.

"Þetta er erfitt. Mjög erfitt að velja bara þrjá," sagði James.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×