Bíó og sjónvarp

Neitun Jim Carrey sögð milljarða virði

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Réttsælis frá vinstri: Leikarinn Jim Carrey, leikstjórinn Jeff Wadlow og myndasöguhöfundurinn Mark Millar.
Réttsælis frá vinstri: Leikarinn Jim Carrey, leikstjórinn Jeff Wadlow og myndasöguhöfundurinn Mark Millar. samsett mynd
Mark Millar, skapari myndasögunnar Kick-Ass, segir ákvörðun leikarans Jims Carrey um að taka ekki þátt í auglýsingaherferð kvikmyndarinnar Kick-Ass 2 vera 3,6 milljarða virði.

Carrey leikur í kvikmyndinni, sem frumsýnd verður í þessum mánuði, og ákvað hann í kjölfar fjöldamorðanna í Sandy Hook að veita ekki viðtöl vegna myndarinnar.

„Ég lék í myndinni mánuði fyrir fjöldamorðin en nú get ég ekki, samvisku minnar vegna, lagt blessun mína yfir ofbeldi af þessu tagi,“ skrifaði leikarinn á Twitter-síðu sína í júní.

Í viðtali við kvikmyndavef Yahoo! segir Millar ummæli Carrey vera frábær.

„Kick-Ass 2 er 28 milljón dollara mynd. Við höfum ekki sama fjármagn og The Lone Ranger eða einhver af hinum risamyndum sumarsins. En við vorum meira í blöðunum.“

Millar segir „baunateljarana“ hjá Universal-kvikmyndaverinu hafa reiknað það út að fjölmiðlaumfjöllunin um ákvörðun Carreys hafi verið um 30 milljón dala virði. Það jafngildir um 3,6 milljörðum króna.

Jeff Wadlow, leikstjóri myndarinnar, tekur þó ekki undir orð Millars.

„Hvaðan fær hann þessar tölur? Ég elska Mark. Þetta hefur hann dregið út úr afturendanum á sér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×