Bíó og sjónvarp

Kvikmyndaformið ein áhrifamesta listgreinin

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Þrjú fyrirtæki voru sæmd Heiðurslundanum fyrir dyggan stuðning sinn við hátíðina síðastliðin tíu ár.
Þrjú fyrirtæki voru sæmd Heiðurslundanum fyrir dyggan stuðning sinn við hátíðina síðastliðin tíu ár.
RIFF, Reykjavík International Film Festival, þakkaði samstarfsaðilum sínum í gegnum árin í gær með sumarhúllumhæi í höfuðstöðvum sínum að Tjarnargötu 12. Voru af því tilefni þrjú fyrirtæki sérstaklega heiðruð sem staðið hafa við bakið á hátíðinni í þau tíu ár sem hún hefur verið haldin. Fyrirtækin DHL, Höldur Bílaleiga Akureyrar og Iceland Excursions voru sæmd Heiðurslundanum, sérstökum þakklætisvotti.

Hljómsveitin Valdimar tróð upp fyrir gesti og gangandi sem gæddu sér á veitingum í boði hússins. Myndir af atburðinum má sjá í myndasafninu hér að ofan.

RIFF verður þetta árið haldin dagana 26. september til 6. október. Nánari upplýsingar má nálgast hér.

Mikilvægi hátíðarinnar er mikið ef marka má orð aðstandenda sem segja: „Nú þegar landið er enn að ganga í gegnum öldusjó efnahags-skipsbrotsins er mikilvægt að fræða, upplýsa, finna nýjar lausnir og gefa ímyndunaraflinu frjálsan taum. Mynd getur sagt meira en þúsund orð - hvað þá heil kvikmynd - en kvikmyndaformið hefur löngum verið talið ein áhrifamesta listgreinin. Í geysilega fjölbreyttu kvikmyndaúrvali RIFF þetta árið - líkt og önnur ár - má finna myndir sem einmitt gera þetta: fræða, upplýsa, finna nýjar lausnir og gefa ímyndunaraflinu frjálsan taum.”






Fleiri fréttir

Sjá meira


×