Sport

Anton bætti Íslandsmet sitt á HM

Anton Sveinn Mckee
Anton Sveinn Mckee
Anton Sveinn Mckee úr Sundfélaginu Ægi bætti í morgun Íslandsmet sitt í 400 metra skriðsundi á heimsmeistaramótinu sem haldið er í Barcelona.

Anton bætti Íslandsmet sitt um tæpar tvær sekúndur sem hann synti á 3:54,67 mínútum um helgina. Anton endaði í 27. sæti í keppninni en 48 keppendur tóku þátt.

Árangurinn er stórgóður en hann var fyrirfram 35. sterkasti keppandinn í greininni miðað við fyrri árangur.

Fleiri Íslendingar syntu í morgun en Eygló Ósk Gústafsdóttir sem er einnig úr Ægi synti 200 metra fjórsund og hafnaði hún í 33. sæti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×