Íslenski boltinn

FH með frábæran útisigur á Ekranas

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pétur Viðarsson gerði sigurmark FH.
Pétur Viðarsson gerði sigurmark FH. Mynd/Ernir
FH-ingar unnu frábæran sigur, 1-0, á litháensku meisturunum í Ekranas í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fór fram í Litháen.

FH stendur því vel að vígi fyrir síðari leikinn sem fram fer á Kaplakrikavelli eftir viku.

Pétur Viðarsson gerði eina mark leiksins þegar um hálftími var liðinn af leiknum. Leikmenn Ekranas skutu boltanum nokkrum sínum í tréverkið í síðari hálfleiknum og voru því Hafnfirðingarnir nokkuð heppnir að fara með sigur af hólmi.

FH fékk einnig sín færi í leiknum og fleiri mörk hefði hæglega getað litið dagsins ljós.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×