Körfubolti

Paul mun framlengja við Clippers

Chris Paul.
Chris Paul.
ESPN greinir frá því að leikstjórnandinn Chris Paul sé búinn að ná samkomulagi við LA Clippers um nýjan fimm ára samning. Sá samningur mun færa Paul yfir 100 milljónir dollara í aðra hönd.

Clippers gerði nýjan fimm ára samning við Blake Griffin síðasta sumar og helsta forgangsmál félagsins síðan hefur verið að semja við Paul sem kom til félagsins árið 2011.

Paul skoraði 16,9 stig, gaf 9,7 stoðsendingar, tók 3,7 fráköst og stal 2,4 boltum að meðaltali í leik síðasta vetur.

Hann var valinn í úrvalslið NBA-deildarinnar sem og varnarlið deildarinnar

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×