Körfubolti

Kobe vill kenna Howard að verða meistari

Kobe og Dwight.
Kobe og Dwight.
Sirkusinn í kringum Dwight Howard, leikmann LA Lakers, síðasta sumar gleymist seint. Sami sirkus er farinn aftur í gang núna og er stanslaust fjallað um hvað hann geri að þessu sinni.

Howard getur verið áfram hjá Lakers en hann getur líka yfirgefið félagið. Hefur hann verið sterklega orðaður við Houston Rockets sem vill fá hann í sínar raðir.

Kobe Bryant, stórstjarna Lakers, er búinn að funda með Howard vegna málsins. Hann kom ekki til þess að sleikja Howard upp heldur skoraði hann á miðherjann stóra.

"Áður en þú verður meistari þarftu að læra hvernig á að vinna. Leyfðu mér að kenna þér. Ég lærði af þeim bestu, mönnum sem hafa unnið aftur og aftur," á Bryant að hafa sagt við Howard.

Dallas, Atlanta og Golden State hafa líka áhuga á því að fá Howard.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×