Bíó og sjónvarp

Ný mynd í bígerð hjá Baltasar

Jóhannes Stefánsson skrifar
Baltasar Kormákur er með mörg járn í eldinum.
Baltasar Kormákur er með mörg járn í eldinum. Mynd/ GETTY
Ný mynd er nú í bígerð hjá Baltasar Kormák, kvikmyndaleikstjóra. Myndin er spennumynd og fjallar um fanga sem eru frelsaðir úr fangelsi í einn dag til að myrða spillta stjórnmálamenn. Þetta staðfesti Baltasar í samtali við Vísi.

„Þetta er byggt á þessari sannsögulegu hugmynd, en þetta gerðist bæði í Mexíkó og á Filippseyjum. Þessi nýja mynd er byggð lauslega á þessum atburðum og svo er ég búinn að búa til sögu utan um það," segir Baltasar Kormákur.

Baltasar segir hugmyndina á frumstigi. „Ég er búinn að búa til söguna og er nú í samningaviðræðum við kvikmyndaver um framhaldið. Það á eftir að skrifa handrit en þetta gæti gerst hratt því ég finn fyrir miklum áhuga á verkefninu. Þetta er bæði mjög skýr hugmynd og svo er þetta eitthvað sem maður hefur ekki séð áður. Það gerir þetta spennandi."

Enginn titill er kominn á myndina enn sem komið er.

Baltasar er einnig með myndina 2 Guns á sínum snærum en hún verður frumsýnd þann 2. ágúst næstkomandi í kvikmyndahúsum vestanhafs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×