Körfubolti

NBA-meistararnir í stórhættu á sigurhátíð

LeBron var léttur.
LeBron var léttur.
NBA-meistarar Miami Heat fögnuðu meistaratitli sínum í gær er þeir fóru með tveggja hæða rútu í gegnum borgina.

Leikmenn, þjálfarar, aðstoðarfólk og fjölskyldumeðlimir tóku þátt í fagnaðarlátunum með liðinu og fólkið í borginni lét ekki sitt eftir liggja.

Það var samt eitt vandamál í skrúðgöngunni. Rútan er há, leikmennirnir risastórir og þeir urðu því oft að beygja sig til þess að stórslasa sig ekki.

Einbeiting leikmanna varð því að vera í lagi eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Að ofan má sjá fjölda mynda frá sigurhátíðinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×