Körfubolti

James: Ég ber ábyrgð á þessu tapi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lebron James niðurlútur í leiknum í nótt
Lebron James niðurlútur í leiknum í nótt Mynd. / Getty Images

„Við verðum að gleyma því hvað misfórst hjá okkur í kvöld og fara strax að undirbúa okkur fyrir leik fjögur,“ sagði Lebron James, leikmaður Miami Heat, eftir að lið hans hafði verið niðurlægt, 113-77, gegn San Antonio Spurs í þriðja leik lokaúrslita NBA-deildarinnar í nótt. Spurs leiðir einvígið 2-1.

„Ég verð persónulega að spila mun betur en ég gerði í leiknum í kvöld. Svona döpur frammistaða frá mér má ekki koma aftur fyrir í þessu einvígi,“ sagði James, sem gerði 15 stig fyrir Heat í nótt.

„Ég verð að skjóta betur, spila betri vörn og taka mun skynsamari ákvarðanir. Ég vill ekki kenna neinum um þetta tap, nema bara sjálfum mér og því tek ég alla ábyrgðina.“

Leikur fjögur milli liðanna fer fram aðfaranótt föstudags og verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×