Körfubolti

Iverson sagður hafa rænt börnunum sínum

Allen Iverson.
Allen Iverson.
Lögreglan er nú á eftir körfuboltamanninum fyrrverandi, Allen Iverson, en hann á að hafa rænt börnunum sínum.

Fyrrum eiginkona Allens, Tawanna Iverson, hefur kært fyrrum eiginmann sinn. Hann fór með börnin fimm í frí þann 22. maí síðastliðinn og átti að skila þeim fjórum dögum seinna. Þau eru ekki enn komin heim og Tawanna hefur ekki hugmynd um hvar þau eru.

Tawanna er með fullt forræði yfir börnunum sem eru frá þriggja ára til sextán ára. Hún náði síðast sambandi við Allen þann 4. júní og ætlaði þá að hitta hann með börnin. Allen lét ekki sjá sig.

Þau skötuhjú hafa áður glímt út af ýmsum málum. Ekkert hefur heyrst frá Allen vegna málsins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×