Fjalla um kærustur íslenskra leikmanna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. júní 2013 13:17 Hluti þeirra stelpna sem fjallað hefur verið um. Mynd/Samsett
Handboltavefurinn Fimmeinn.is hefur bryddað upp á nýjung í íslenskri íþróttaumfjöllun. Þar er vikulega fjallað um um kærustur íslenskra handboltamanna og fylgja oftar en ekki myndir af kærustunum fáklæddum. Liðurinn ber heitið KOK vikunnar en KOK er sögð skammstöfun fyrir konur og kærustur. Hann hóf göngu sína í byrjun maí og hefur síðan þá verið fjallað um betri helminga á hverjum þriðjudegi. Í eitt skiptið voru slegnar tvær flugur í einu höggi þegar tvíburarnir Dröfn og Bylgja Haraldsdætur voru teknar fyrir.Nýjasta kærastan sem fjallað er um Hildur Karen Jóhannsdóttir. Kærasti hennar er Gunnar Malmquist sem nýverið gekk til liðs við Akureyri frá Val. „Gunnar er ekki bara að standa sig vel innan vallar heldur er hann að skora hátt utan vallar líka," segir í umfjöllun vefsins um Hildi Karen. Hildur Karen spilar handbolta með kvennaliði Fylkis. Hún hefur verið í landsliði Íslands 19 ára og yngri. Á Fimmeinn.is kemur fram að þær kærustur sem fjallað sé um séu valdar eftir ábendingum sem berist í tölvupósti. Í umfjöllun um Dröfn og Bylgju Haraldsdætur segir að þær hafi gefið leyfi fyrir umfjöllun. Hjá öðrum kærustum kemur það ekki fram.Uppfært: Arnar Gauti Grettisson, eigandi síðunnar, segir í viðtali við Vísi reikna með því að kærusturnar séu ekki sáttar við að birtar séu myndir af þeim í bíkini.
Íslenski handboltinn Mest lesið Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Fótbolti Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik Sport Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Sjá meira