Körfubolti

Spurs mun sópa Miami

Charles Barkley.
Charles Barkley. vísir/getty

Körfuboltagoðsögnin Charles Barkley er óhræddur við að viðra skoðanir sínar á boltanum og hann er líka óhræddur við að spá djarflega.

Barkley spáir því að San Antonio Spurs muni gera sér lítið fyrir og "sópa" Miami Heat í úrslitum NBA-deildarinnar. Með öðrum orðum að liðið muni vinna rimmuna 4-0.

"Upphafleg spá mín var að Spurs myndi vinna í sex leikjum. Ég þarf að breyta þeirri spá. Ég held að Miami komist ekki heim frá San Antonio. Mig langar að segja svolítið kjánalegt núna. Ég held að Spurs muni sópa Miami og ég er ekki að grínast," sagði Barkley eftir fyrsta leikinn.

Annar leikurinn fer fram í Miami á morgun og svo verða næstu þrír leikir eftir það spilaðir í San Antonio. Ef fleiri leiki þarf til verða þeir spilaðir í Miami.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×