Fótbolti

Dortmund neitar að selja Lewandowski til Bayern

Lewandowski fagnar í Meistaradeildinni í vetur.
Lewandowski fagnar í Meistaradeildinni í vetur.

Það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að framherji Dortmund, Robert Lewandowski, vilji fara til Bayern München og var búist við því að hann færi þangað. Af því verður ekki.

Íþróttastjóri Dortmund, Michael Zorc, segir það ekki koma til greina að selja leikmanninn til Bayern. Dortmund er þegar búið að selja Mario Götze til félagsins.

"Við höfum látið leikmanninn og hans umboðsmenn vita af því að hann fái ekki að fara til Bayern í sumar," sagði Zorx.

Samningur hins 24 ára gamla Lewandowski rennur út næsta sumar og Dortmund mun því verða af ansi miklum peningum ef hann fer á frjálsri sölu næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×