Fótbolti

Lewandowski vildi ekki ræða um Bayern

Lewandowski fagnar hér fernunni fræknu gegn Real Madrid í Meistaradeildinni.
Lewandowski fagnar hér fernunni fræknu gegn Real Madrid í Meistaradeildinni. Nordic Photos / Getty Images

Þó svo umboðsmaður pólska framherjans, Roberts Lewandowski, sé búinn að lýsa því yfir að skjólstæðingur hans sé á leið til Bayern München frá Dortmund þá vill leikmaðurinn ekki staðfesta það.

"Robert fer til Bayern í sumar. Það er enginn tilgangur í því að láta eins og hann sé ekki að fara þangað. Robert vill fara og þetta mun gerast. Það er aðeins tímaspursmál hvenær við göngum frá samningum," sagði umbinn.

Lewandowski spilaði gegn Bayern í úrslitum Meistaradeildarinnar um helgina og vildi lítið ræða framtíðina eftir leik. Reyndar vildi hann ekki ræða hana yfir höfuð.

Jupp Heynckes, þjálfari Bayern, gaf þó í skyn eftir leikinn að það væri ansi líklegt að Lewandowski færi til Bayern.

Lewandowski var næstmarkahæstur í þýsku úrvalsdeildinni í vetur með 24 mörk í 31 leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×