Körfubolti

16 ára liðið slátraði Finnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Finnar komust hvorki lönd né strönd gegn íslenskum strákunum í dag.
Finnar komust hvorki lönd né strönd gegn íslenskum strákunum í dag. Mynd/Karfan.is
U16 ára landslið Íslands í körfubolta heldur áfram sigurför sinni á Norðurlandamótinu í Svíþjóð.

Strákarnir pökkuðu jafnöldrum sínum frá Finnlandi saman í dag 97-64. Njarðvíkingarnir Ragnar Friðriksson og Kristinn Pálsson skoruðu 19 stig hvor.

Strákarnir lögðu Eista með 19 stigum, Norðmenn með 61 stigi og nú fengu Finnar að kenna á íslensku strákunum. Leikurinn var í beinni textalýsingu á vefsíðunni Karfan.is sem fylgist grannt með gangi mála ytra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×