Körfubolti

Jón Halldór þjálfar Grindavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/karfan.is

Keflvíkingurinn Jón Halldór Eðvaldsson hefur gert tveggja ára samning við Grindavík um að stýra kvennaliði félagsins í körfubolta.

Guðmundur Bragason stýrði liðinu í vetur ásamt Crystal Smith, leikmanni félagsins, en hann verður ekki áfram.

Jón Halldór er margreyndur þjálfari og hefur gert lið Keflavíkur að Íslandsmeistara. Hann hefur einnig starfað sem aðstoðarþjálfari karlaliðs Keflavíkur.

Það er karfan.is sem greinir frá þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×