Meiðslum hrjáð Bulls sló út Nets Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 5. maí 2013 11:00 Leikmenn Nets réðu ekkert við Noah. Mynd/AP
Þrátt fyrir mikil meiðslavandræði sigraði Chicago Bulls Brooklyn Nets á útivelli í oddaleik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA körfuboltans í nótt 99-93. Joakim Noah fór á kostum í leiknum. Bulls lagði grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Sóknarleikur liðsins gekk frábærlega og var liðið 17 stigum yfir í hálfleik 61-44 og það þrátt fyrir að Luol Deng, Kirk Hinrich og Derrick Rose séu allir fjarverandi vegna meiðsla. Með Deron Williams í fararbroddi náði Nets að minnka muninn í sjö stig fyrir fjórða leikhluta en það munaði miklu að hinn rándýri Joe Johnson náði sér aldrei á strik en hann hitti úr aðeins 2 af 14 skotum sínum og stóð engan vegin undir launatékkanum þegar á þurfti að halda. Bulls hélt út og mætir Miami Heat í undanúrslitum Austurstrandarinnar. Frábær árangur hjá liði sem hefur ekki notað krafta síns besta leikmanns í einum einasta leik á tímabilinu, Rose. Joakim Noah skoraði 24 stig og tók 14 fráköst fyrir Bulls. Marco Belinelli skoraði 24 stig og Carlos Boozer 17. Deron Williams skoraði 24 stig, tók sex fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Nets. Brook Lopez skoraði 21 stig og hirti 9 fráköst og Gerald Wallace skoraði 19 stig.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira