Lífið

Bieber fær sér tvö ný tattú

Poppprinsinn Justin Bieber skartaði tveimur nýjum húðflúrum þegar hann spókaði sig um í Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar, í vikunni.

Sýndi hann aðdáendum sínum húðflúr af tígrisdýri og annað af engli á vinstri handlegg sínum og virðist sem Justin ætli að húðflúra allan handlegginn – fá sér svokallaða ermi.

Friður sé með yður.
Munu þetta vera þrettánda og fjórtánda húðflúr kappans.

Reffilegur.
Justin fékk sér sitt fyrsta húðflúr, af mávi, á vinstri mjöðm sína þegar hann varð sextán ára árið 2011.

Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.