Körfubolti

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Keflavík 75-65 | 1-1 í einvíginu

Stefán Árni Pálsson skrifar
KR vann frábæran sigur, 75-65, á Keflavík í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn og jafnaði þar með einvígið 1-1. Sigrún Sjöfn Ámundardóttir gerði 19 stig fyrir KR og átti frábæran leik. Pálína Gunnlaugsdóttir og Jessica Ann Jenkins voru einu leikmenn Keflavíkur sem léku á pari en þær gerðu báðar 19 stig.

Liðin voru bæði ákveðin í upphafi leiksins og ætluðu sér greinilega að selja sig dýrt í DHL-höllinni. KR-ingar voru skrefi á undan og sýndu lipra sóknartakta á köflum en liðið leiddi leikinn 20-19 eftir fyrsta leikhlutann.

Keflvíkingar komu sterkar inn í annan leikhluta og voru fljótlega komnar yfir 26-23 og var liðið komið í takt við leikinn.

KR-ingar hleyptu Keflvíkingum ekki langt undan sér og voru alltaf vel inn í leiknum. Helga Einarsdóttir, leikmaður KR, átti frábæran annan leikhluta og réðu Keflvíkingar ekkert við hana undir körfunni. Staðan var síðan 42-37 í hálfleik og mátti búast við spennandi síðari hálfleik.

Það tók Keflavík sex mínútur að skora sín fyrstu stig í síðari hálfleiknum og þá hafði KR náð13 stiga forskoti 50-37.

Skelfileg byrjun hjá Keflavík og KR nýtti sér það vel. KR-ingar héldu nokkuð vel út leikhlutann og leiddu leikinn 58-48 fyrir síðustu tíu mínútur leiksins.

KR hélt áfram uppteknum hætti í upphafi fjórða leikhlutans og fundu hvað eftir annað lausnir á hápressuvörn Keflvíkinga en þegar þrjá mínútur voru liðnar af leikhlutanum var staðan 62-53 fyrir KR. Keflavík hóf þá að leika framliggjandi pressuvörn sem fór oft á tíðum með KR-inga og leikmenn liðsins tóku ítrekað rangar ákvarðanir.

Þegar rúmlega þrjár mínútur voru eftir af leiknum var staðan 67-59 fyrir KR. Heimastúlkur héldu leikinn út og unnu að lokum nokkuð öruggan sigur 75-65. Liðið hafa nú bæði unnið einn leik og því mikil spenna í einvíginu. Næsti leikur fer fram í Keflavík á föstudagskvöldið.





Sigrún Sjöfn: Varnarvinnan var frábær í kvöld
„Mér líður virkilega vel með þennan sigur,“ sagði Sigrún Sjöfn Ámundardóttir, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld.

„Það var mikilvægt fyrir okkur að verja heimavöllinn og síðan er ljóst að við þurfum að stela einum leik í Keflavík.“

„Við vorum að setja niður opin skot í kvöld sem var ekki að ganga upp hjá okkur í síðasta leik í Keflavík. Við vorum jákvæðar og ákveðnar í því sem við vorum að gera, það skilaði þessum sigri í kvöld.“

„Varnarvinnan var frábær hjá okkur í kvöld og allir leikmenn að leggja sitt af mörkum.“

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Sigrúnu hér að ofan.



Pálína: Þær vildu sigurinn miklu meira en við
„Ég er auðvitað hundfúl en svona er úrslitakeppnin,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir, leikmaður Keflavík, eftir tapið í kvöld.

„Núna er ekkert hægt að setja hausinn ofan í bringu, það er bara æfing á morgun og áfram gakk.“

„Við mætum bara ekki nægilega ákveðnar til leiks út  í síðari hálfleikinn og hugarinn var einhverstaðar annarsstaðar en í þessu húsi.“

„KR-ingar vildu sigurinn greinilega miklu meira en við. Þær voru grimmari og fóru í öll fráköst.“

„Við þurfum að bæta varnarleik okkar fyrir föstudagskvöldið og mæta mun grimmari til leiks.“

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Pálínu með því að ýta hér.



KR-Keflavík 75-65 (20-18, 22-19, 16-11, 17-17)KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19/5 fráköst, Shannon McCallum 18/11 fráköst, Helga Einarsdóttir 15/7 fráköst/3 varin skot, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 7/11 fráköst/9 stoðsendingar, Ína María Einarsdóttir 6, Björg Guðrún Einarsdóttir 5/5 fráköst/5 stoðsendingar, Rannveig Ólafsdóttir 3, Sara Mjöll Magnúsdóttir 2, Anna María Ævarsdóttir 0, Salvör Ísberg 0, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 0, Hafrún Hálfdánardóttir 0.



Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 19/4 fráköst, Jessica Ann Jenkins 19, Sara Rún Hinriksdóttir 9/4 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 8, Ingunn Embla Kristínardóttir 8/4 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 2/6 fráköst/5 stoðsendingar, Telma Lind Ásgeirsdóttir 0, Sandra Lind Þrastardóttir 0, Lovísa Falsdóttir 0, Elínora Guðlaug Einarsdóttir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0, Ingibjörg Jakobsdóttir 0.

Bein textalýsing frá DHL-höllinni í kvöld:Leik lokið: KR vinnur örugglega 75-65 og jafnar einvígið 1-1.

39. mín | 72-61: KR er enn með fín tök á leiknum og virðast ætla sigla þessum sigri heim og jafna þar með einvígið.

38. mín | 70-59: Frábær þriggja stiga karfa frá Sigrúnu Sjöfn Ámundardóttir sem kemur á besta tíma fyrir KR.

35. mín | 62-56: Þessi pressuvörn frá Keflavík er að slá heimamenn útaf laginu og taka leikmenn KR nú ítrekað rangar ákvarðanir og missa í kjölfarið boltann.

34. mín | 62-53: KR-ingar ætla sér ekki að láta þetta forskot frá sér og spila skynsamlega þessa stundina.

32. mín | 60-53: Keflavík pressar KR virkilega hátt upp á völlinn og eru heimastúlkur stundum í vandræðum með að finna lausn á varnarleik þeirra. KR er samt sem áður enn með fín tök á leiknum.

Bein textalýsing frá DHL-höllinni:

3. leikhluta lokið: Þetta var svo sannarlega fjórðungur KR-inga sem leiða leikinn 58-48 fyrir lokaleikhlutann.

29. mín | 56-45: Tvær körfur í röð frá Pálínu Gunnlaugsdóttir í Keflavík. Gríðarlega mikilvæg stig.

28. mín | 56-41: Frábær leikhluti hjá KR sem hafa náð fimmtán stiga forskoti. Þetta lítur vel út fyrir heimamenn þessa stundina.

26. mín | 50-39: Loksins skora Keflvíkingar eftir sex mínútur.

24. mín | 48-37: Keflavík hefur ekki enn skorað stig í síðari hálfleiknum og eru KR-ingar að keyra yfir þær hér á upphafsmínútunum.

22. mín | 44-37: KR byrjar síðari hálfleikinn betur og gera fyrstu tvö stig síðari hálfleiksins.

Hálfleikur | 42-37: KR-ingar fara með fimm stiga forskot inn í hálfleikinn og geta þær þakkað Helgu Einarsdóttir fyrir það en hún hefur gert 13 stig í leiknum.

19. mín | 41-37: KR-ingar hafa sýnt virkilega fínan takta undir lok hálfleiksins og leiða nú leikinn með fjórum stigum.

16. mín | 33-32: Helga Einarsdóttir hjá KR er að sýna frábæra takta á vellinum þessa stundina og ber sóknarleik KR-inga uppi. Staðan er 33-32 fyrir KR og hefur Helga gert níu stig.

14. mín | 28-32: Pálína Gunnlaugsdóttir, leikmaður Keflavíkur, hefur gert tíu stig fyrir gestina og er stigahæst á vellinum. Hún hefur komið sterk inn hér í öðrum leikhluta. Staðan er 32-28 fyrir Keflavík.

12. mín | 23-26: Fín byrjun hjá Keflavík í öðrum leikhluta en þær eru strax komnar yfir 26-23.

1. leikhluta lokið: Keflvík kom sterkt til baka undir lok fyrsta leikhlutans og var staðan 20-19 fyrir KR eftir tíu fyrstu mínútur leiksins.

8. mín | 16-11: Björg Guðrún Einarsdóttir setur hér niður þrist fyrir KR og staðan er orðin 16-11 fyrir heimastúlkur.

6. mín | 9-9: Keflvíkingar hafa jafnað metin 9-9.

4. mín | 7-5: Fín byrjun á þessum leik en staðan er 7-5 fyrir KR en hér er hart barist.

2. mín | 3-0: KR-ingar byrja leikinn vel og setja niður þrist í fyrstu sókn.

Fyrir leik: Áhorfendur farnir að mæta í höllina, vonandi verður mætingin fín í kvöld. Þetta verður flottur leikur.

Fyrir leik: Fyrri leikur liðanna fór 70-52 Keflavík ívil og var sigur þeirra nokkuð sannfærandi. Ef liðinu tekst að leggja KR af velli í kvöld er það aðeins einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum.

Fyrir leik: KR er á heimavelli í kvöld og hafa þær staðið sig með prýði í undanförnum leikjum í DHL-höllinni.

Fyrir leik: KR-ingar voru ekki parsáttir við varnarleik Keflvíkinga í síðasta leik og eiga væntanlega eftir að mæta brjálaðar til leiks í kvöld.  

Fyrir leik: Jæja þá er komið að öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en Keflavík vann leik eitt og leiðir því einvígið 1-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×