Körfubolti

Gasol valinn besti varnarmaðurinn

Gasol á ferðinni í vetur.
Gasol á ferðinni í vetur.
Marc Gasol, leikmaður Memphis Grizzlies, var í dag valinn besti varnarmaðurinn í NBA-deildinni. LeBron James, leikmaður Miami Heat, varð annar í kjörinu.

Gasol fékk 212 stig í kjörinu og þar af 30 atkvæði í fyrsta sætið. James fékk 149 stig og 18 atkvæði í fyrsta sætið. Serge Ibaka, leikmaður Oklahoma Thunder, varð þriðji með 122 stig.

Spánverjinn stæðilegi var með 1,7 varin skot að meðaltali í leik. Lið hans var 6,8 stigum betra í vörn í hverjum 100 sóknum með hann inn á vellinum.

Erik Spoelstra, þjálfari Miami, var ekki ánægður að sjá sinn mann í öðru sæti.

"Ég væri til í að sjá hann fá þessi verðlaun einn daginn," sagði Spoelstra.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×