Körfubolti

Tímabilið líklega búið hjá Kobe

Kobe heldur hér um ökklann og er augljóslega sárþjáður.
Kobe heldur hér um ökklann og er augljóslega sárþjáður. vísir/getty
LA Lakers vann gríðarlega mikilvægan sigur á Golden State eftir framlengingu í nótt en sigurinn var liðinu dýr. Stjarna liðsins, Kobe Bryant, meiddist á ökkla í leiknum og spilar líklega ekki meira í vetur.

Bryant meiddist þegar rúmar 3 mínútur voru eftir af leiknum. Hann haltraði á bekkinn, kom aftur inn á til þess að setja niður tvö víti áður en hann hvarf inn í búningsklefa. Eftir leikinn bárust þau tíðindi að hann yrði líklega ekki meira með.

"Þetta er hreyfing sem ég hef gert milljón sinnum en ökklinn fór bara úr sambandi," sagði Kobe eftir leikinn.

Það eru tveir leikir eftir af deildarkeppninni og Lakers er í úrslitakeppnissæti. Einum sigri á undan Utah Jazz.

Úrslit:

Toronto-Chicago  97-88

Washington-Philadelphia  86-97

Indiana-Brooklyn  109-117

Atlanta-Milwaukee  109-104

Miami-Boston  109-101

Detroit-Charlotte  113-93

Cleveland-NY Knicks  91-101

New Orleans-LA Clippers  93-96

Houston-Memphis  78-82

Dallas-Denver  108-105

San Antonio-Sacramento  108-101

Utah-Minnesota  107-100

Portland-Oklahoma  90-106

LA Lakers-Golden State  118-116



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×