Körfubolti

NBA: Utah Jazz á enn möguleika á því að ná Lakers

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Al Jefferson hjá Utah Jazz.
Al Jefferson hjá Utah Jazz. Mynd/AP
Baráttan um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppni Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta heldur áfram alveg fram í síðasta leik eftir að Utah Jazz vann sinn leik í nótt. Utah er einum sigurleik á eftir Los Angeles Lakers þegar bæði lið eiga enn leik eftir en það nægir Jazz-liðinu að jafna Lakers.

Al Jefferson skoraði 22 stig þegar Utah Jazz vann 96-80 útisigur á Minnesota Timberwolves, "Nú ræðst þetta bara í einum leik. Það er stór leikur en við verðum bara að hugsa um það sem við getum stjórnað," sagði Al Jefferson eftir leik.

Til að Utah Jazz komist í úrslitakeppnina þarf Jazz-liðið að vinna Memphis í lokaleik sínum á sama tíma og Los Angeles Lakers tapar fyrir Houston Rockets á heimavelli. Bæði lið Utah og Lakers hafa verið á góðu skriði að undanförnu.

Kevin Durant var með 29 stig, 8 stoðsendingar og 7 fráköst þegar Oklahoma City Thunder vann 104-95 sigur á Sacramento Kings og tryggði sér með því efsta sætið í Vesturdeildinni. Þetta var fjórði sigur Thunder-liðsins í röð.

Carmelo Anthony, J.R. Smith og Raymond Felton hvíldu allir þegar New York Knicks tapaði 95-106 á móti Charlotte Bobcats. Gerald Henderson skoraði 27 stig fyrir Charlotte og Kemba Walker var með 23 stig.

Norris Cole vantaði bara eina stoðsendingu í þrennuna (16 stig, 11 fráköst, 9 stoðsendingar) þegar Miami Heat vann 96-95 sigur á Cleveland Cavaliers án þeirra LeBron James, Dwyane Wade, Shane Battier, Chris Bosh, Mario Chalmers og Udonis Haslem.

Stephen Curry setti niður sjö þrista og skoraði alls 35 stig þegar Golden State Warriors vann 116-106 sigur á San Antonio Spurs. Klay Thompson var með 23 stig fyrir Golden State en Gary Neal skoraði 25 stig fyrir Spurs-liðið sem hvíldi þá Tim Duncan, Tony Parker og Kawhi Leonard.



Öll úrslit í NBA-deildinni í nótt:

Charlotte Bobcats - New York Knicks     106-95     

Orlando Magic - Chicago Bulls     84-102          

Cleveland Cavaliers - Miami Heat     95-96         

Brooklyn Nets - Washington Wizards     106-101         

Detroit Pistons - Philadelphia 76Ers     109-101         

Milwaukee Bucks - Denver Nuggets     111-112     

Dallas Mavericks - Memphis Grizzlies     97-103         

Oklahoma City Thunder - Sacramento Kings     104-95         

Minnesota Timberwolves - Utah Jazz     80-96         

Phoenix Suns - Houston Rockets     119-112         

Golden State Warriors - San Antonio Spurs     116-106     



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×