Fótbolti

Bayern gekk frá Wolfsburg í bikarnum | Gomez með þrennu á sex mínútum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mario Gomez í leik með Bayern.
Mario Gomez í leik með Bayern. Nordic Photos / AFP
Bayern München er komið í úrslit þýsku bikarkeppninnar eftir 6-1 stórsigur á Wolfsburg í undanúrslitum í kvöld.

Bayern er þegar búið að tryggja sér þýska meistaratitilinn og er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.

Liðið á því enn möguleika á að vinna þrefalt í ár en liðið mætir annað hvort Stuttgart eða Freiburg í úrslitaleiknum sem fer fram í Berlín þann 1. júní.

Arjen Robbin, Xherdan Shaqiri og Mario Mandzukic komu Bayern í 3-1 en á 77. mínútu kom Mario Gomez inn á sem varamaður fyrir þann síðastnefnda.

Gomez nýtti mínúturnar vel því hann skoraði hin þrjú mörk Bayern á aðeins sex mínútna kafla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×