Lífið

Ég ætla aldrei að slá hana aftur

Tónlistarmaðurinn Chris Brown fer mikinn þessa dagana og vill ólmur sanna fyrir heiminum að hann sjái eftir að hafa gengið í skrokk á kærustu sinni Rihönnu í febrúar árið 2009.

"Ég er mjög auðmjúkur eftir þessa reynslu," segir Chris í viðtali við Matt Lauer í sjónvarpsþættinum Today. Hann blæs á kjaftasögur þess efnis að þau Rihanna séu nú hætt saman í annað sinn og segist aldrei vilja gera henni mein aftur.

Chris er umdeildur maður en Rihanna hefur fyrirgefið honum.
"Ég er að sanna sjálfan mig og að reyna að vera karlmaður. Ég veit að það sem ég gerði var rangt og ég geri það aldrei aftur. Varðandi okkar samband þá þekkir hún hjarta mitt og ég þekki hennar. Ég einblíni ekki á það neikvæða."

Ást.
Fundu ástina á vonlausum stað.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.