Körfubolti

Alda Leif missir af úrslitakeppninni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Daníel
Alda Leif Jónsdóttir, leikmaður Snæfells, er meidd á hné og spilar ekki með liði sínu í úrslitakeppninni sem er fram undan.

Alda Leif hefur verið að glíma við meiðsli í hinu hnénu en fram kom í máli Inga Þórs Steinþórssonar, þjálfara Snæfells, á blaðamannafundi í dag að óttast væri að Alda Leif hefði jafnvel slitið krossband.

Þá fór Berglind Gunnarsdóttir úr axlarlið í síðasta leik Snæfells í deildarkeppninni auk þess sem að Hildur Sigurðardóttir fékk slæman skurð á ennið.

Úrslitakeppnin í Domino's-deild kvenna hefst á morgun. Snæfell mætir KR og deildarmeistarar Keflavíkur leika gegn Val.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×