Stórt tap í fyrri leiknum hjá Söru og Þóru Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2013 18:51 Þóra Björg Helgadóttir. Mynd/Nordic Photos/Getty
Sara Björk Gunnarsdóttir, Þóra Björg Helgadóttir og félagar þeirra í sænska liðinu LdB Malmö urðu að sætta sig við 5-0 tap í kvöld á móti franska liðinu Olympique Lyon í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. LdB Malmö er vissulega á heimavelli í seinni leiknum en á ekki mikla möguleika á móti Lyon sem hefur unnið Meistaradeildina tvö síðustu ár. Þóra Björg Helgadóttir stóð í marki LdB Malmö og hafði nóg að gera og Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leikinn á miðju liðsins. Sænski framherjinn Lotta Schelin fór illa með lið LdB Malmö í kvöld því hún skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Hin mörkin skoruðu frönsku stelpurnar Camille Abily, Élodie Thomis og Louisa Nécib. Lyon var 2-0 yfir í hálfleik en LdB Malmö átti ágætan sprett í upphafi seinni hálfeiks. Það skilaði ekki marki og Lyon gerði síðan út um leikinn með tveimur mörkum með níu mínútna millibili. Síðasta markið kom mínútu fyrir leikslok og gerði endanlega út um möguleika sænska liðsins.
Meistaradeild Evrópu Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Sjá meira