Körfubolti

Ingi Þór verður með Snæfell til ársins 2016

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingi Þór Steinþórsson
Ingi Þór Steinþórsson Mynd/Daníel
Ingi Þór Steinþórsson hefur gert nýjan samning við Snæfell og mun því starfa í Stykkishólmi í það minnsta til ársins 2016. Ingi Þór gerði Snæfell að Íslandsmeisturum og bikarmeisturum karla vorið 2010 og stelpurnar hafa náð sínum besta árangri undir hans stjórn. Þetta kemur fram á karfan.is.

Ingi Þór tók við Snæfelli 2009 og er nú á sínu fjórða tímabilið með liðið. Hann mun samkvæmt þessum nýja samningi þjálfa Snæfell næstu þrjú tímabili.

Ingi hefur verið við stjórnartaumana hjá bæði karla- og kvennaliði félagsins og verður svo áfram en bæði lið eru á fullu í úrslitakeppninni í ár. Snæfellskonurnar enduðu í 2. sæti í deildinni en strákarnir urðu í 3. sæti og spila sinn fyrsta leik í úrslitakeppninni á móti Njarðvík annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×