Körfubolti

KR vann deildarmeistarana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sara Mjöll Magnúsdóttir skoraði sex stig fyrir KR.
Sara Mjöll Magnúsdóttir skoraði sex stig fyrir KR. Mynd/Stefán
KR á enn möguleika á að ná öðru sæti Domino's-deildar kvenna en liðið hafði betur gegn nýkrýndum deildarmeisturum Keflavíkur í framlengdum leik í kvöld, 93-88.

Keflavík tryggði sér titilinn fyrr í vikunni en tvær heilar umferðir eru eftir af deildarkeppninni. KR er í þriðja sæti en aðeins tveimur stigum á eftir Snæfelli. Þessi tvö lið mætast í lokaumferðinni.

Jafnræði var með liðunum í kvöld en KR spilaði betur í framlengingunni. Shannon McCallum skoraði 38 stig en Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir var einnig öflug með sautján stig, auk þess sem Sigrún Ámundadóttir skoraði sextán.

Birna Valgarðsdóttir skoraði 26 stig fyrir Keflavík og var stigahæst.

KR-Keflavík 93-88 (21-28, 15-16, 26-11, 15-22, 16-11)

KR: Shannon McCallum 38/12 fráköst/5 stolnir, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 17/15 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 16/15 fráköst/5 stoðsendingar, Björg Guðrún Einarsdóttir 8/6 fráköst/6 stoðsendingar, Rannveig Ólafsdóttir 6, Sara Mjöll Magnúsdóttir 6, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2.

Keflavík: Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 26/8 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 24/9 fráköst, Jessica Ann Jenkins 14/4 fráköst/5 stoðsendingar, Sara Rún Hinriksdóttir 11/8 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 6/8 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 4/4 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×