Sport

Gunnar: Minn erfiðasti bardagi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar í bardaganum gegn Santiago um helgina.
Gunnar í bardaganum gegn Santiago um helgina. Nordic Photos / Getty Images
Gunnar Nelson var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum á X-inu í morgun þar sem hann fór yfir bardaga sinn gegn Jorge Santiago um helgina.

„Þetta var þokkalega öruggt og enginn vafi hjá þeim sem þekkja til þegar dómaraúrskurðurinn kom," sagði Gunnar en viðtalið er væntanlegt inn á íþróttavef Vísis síðar í dag.

„Mér fannst ég alltaf vera að vinna mig nær og nær honum. Ég var byrjaður að lesa hann betur, þó svo að ég hafi ekki náð að klára hann á þessum þremur lotum. Ég var orðinn dauðþreyttur," sagði Gunnar. „En í þetta sinn var tíminn ekki nægur."

Hann segir að bardaginn gegn Santiago hafi verið sinn erfiðasti á ferlinum. „Já, það er óhætt að orða það þannig - þó svo að ég hafi áður farið í erfiða bardaga."

Gunnar segist ekki eyða miklum tíma í að skoða andstæðinga sína. „Ég leit vissulega á hann og ég hafði séð hann berjast áður. En ég ligg yfirleitt ekki yfir mínum andstæðingum og spái frekar í því hvað ég er að gera."

„Það getur vissulega verið ágætt að stúdera andstæðingana sína en mér finnst bara hitt skemmtilegra. Ég fylgist með sportinu á minn hátt og horfi á aðra bardaga. En svo geta andstæðingar líka breyst allt í einu og maður hefur ekkert vald yfir því."

Hann segir óvíst hvenær hann berjist næst. „Það er oft miðað við fjóra mánuði á milli bardaga en eins og er algjörlega óráðið hvaða andstæðing ég fæ næst. En það er nóg af strákum þarna úti."

„Mér finnst líklegra að ég berjist aftur í Evrópu næst, þar sem ég er talsvert þekktari þar en í Bandaríkjunum. Ég á þó eftur að berjast í Bandaríkjunum einhvern tíman, það er ekki spurning."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×