Lífið

Kraftmiklar FKA konur

Ellý Ármanns skrifar
Það ríkti hátíðarstemmning í Ráðhúsi Reykjavíkur síðdegis í dag þar sem FKA; Félag kvenna í atvinnulífinu afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda þeirra karla og kvenna sem standa í framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs. Hafdís Jónsdóttir, formaður félagsins ávarpaði gesti og bauð þá velkomna en að því búnu afhenti Katrín Júlíusdóttir fjármála- og efnahagsráðherra fjórar viðurkenningar.

FKA viðurkenninguna 2013 hlaut Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri Icepharma, stjórnarformaður N1, formaður Félags atvinnurekenda og forseti ESTA (European Surgical Trade Association); evrópskra samtaka dreifingarfyrirtækja á sviði hjúkrunarvara. Margrét er viðskiptafræðingur að mennt og stundaði nám við Háskóla Íslands, HÍ og CBS í Kaupmannahöfn þar sem hún lauk mastersnámi í starfsmannastjórnun.

Hvatningarviðurkenningu FKA hlutu þær Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir – eigendur Tulipop. "Við vorum að fá kennitölu og útvega okkur strikamerki." sögðu þær í blaðaviðtali í lok árs 2010 og nú rúmum tveimur árum síðar eru vörur þeirra seldar í hönnunarverslunum á Íslandi, í Bandaríkjunum, Frakklandi, Hollandi, Írlandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi.

Þakkarviðurkenningu FKA hlaut Guðrún Lárusdóttir í Stálskipum. Guðrún hefur rekið Stálskip í hartnær hálfa öld og er því "skipstjórinn í brúnni" þó hún hafi aldrei farið einn einasta túr sökum sjóveiki. En reksturinn er í hennar höndum og sölumálin annast eiginmaðurinn. Þau hjónin byrjuðu með tvær hendur tómar árið 1970 og í dag selja þau vörur sínar á markaði í Japan, Bretlandi, Suður Kóreu, Kína, Rússlandi, Bandaríkjunum og Grikklandi. Sjá viðtal við Guðrúnu HÉR.

Gæfusporið 2012 hlutu SVÞ; Samtök verslunar og þjónustu og veitti formaður Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ viðurkenningunni viðtöku.

Sjá myndirnar sem Anton Brink tók hér.

Ljósmyndir/Anton Brink
Hafdís Jónsdóttir, Margrét Kristmannsdóttir og Katrín Júlíusdóttir.
Hafdís Jónsdóttir, Signý Kolbeinsdóttir, Helga Árnadóttir og Katrín Júlíusdóttir.
Hér tekur Guðrún Lárusdóttir við þakkarviðurkenningu FKA.
Margrét Guðmundsdóttir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.