Sport

Aníta með nýtt Íslandsmet í 1500 metra hlaupi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aníta Hinriksdóttir fær hér hamingjuóskir þegar Íslandsmetið var í höfn.
Aníta Hinriksdóttir fær hér hamingjuóskir þegar Íslandsmetið var í höfn. Mynd/ÓskarÓ
Aníta Hinriksdóttir, hlaupakonan efnilega úr ÍR, setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 1500 metra hlaupi innanhúss á Stórmóti ÍR í dag þegar hún kom langfyrst í mark á 4 mínútum 19 sekúndum og 57 sekúndubrotum.

Aníta bætti gamla Íslandsmetið um tæpar tvær sekúndur en það var orðið 32ja ára gamalt. Eldra metið setti Ragnheiður Ólafsdóttir í Dortmund 1981 þegar hún hljóp á 4 mínútum 21,49 sekúndum.

Þetta önnur helgin í röð sem Aníta setur Íslandsmet því hún bætti eigið met í 800 metra hlaupi um síðustu helgi. Hún náði þá jafnframt lágmarki fyrir EM í Gautborg í byrjun mars.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×