Fótbolti

Sahin lánaður til Dortmund

Sahin í leik gegn WBA.
Sahin í leik gegn WBA.
Tyrkinn Nuri Sahin er farinn frá Liverpool en hann var í láni hjá félaginu frá Real Madrid. Hinn 23 ára gamli Sahin kom við sögu í 12 leikjum Liverpool í vetur og skoraði þrjú mörk. Hann var þó ekki inn í myndinni hjá stjóranum, Brendan Rodgers, lengstum.

Sahin fór ekki aftur til Real heldur var hann lánaður til síns gamla félags, Dortmund. Þar varð hann meistari árið 2011 og var valinn besti leikmaður deildarinnar árið 2010.

Hann er samningsbundinn Real Madrid til 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×