Lárus með réttarstöðu sakbornings í 12 málum til viðbótar Þorbjörn Þórðarson skrifar 16. janúar 2013 12:08 Lárus Welding ásamt verjanda sínum Óttari Pálssyni.
Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, er með réttarstöðu sakbornings í 12 málum hjá sérstökum saksóknara til viðbótar við þau sem eru til meðferðar fyrir dómstólum. Þá hleypur kostnaður hans af vörnum og í einka- og sakamálum vegna hrunsins á tugum milljóna króna. Þetta kom fram í máli verjanda hans í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Í morgun var málflutningur í Aurum-málinu svokallaða annars vegar um þá kröfu verjenda í málinu að hafna beri framlagningu rannsóknarskýrslu sérstaks saksóknara þar sem framlagning hennar sé óheimil samkvæmt sakamálalögum og hins vegar kröfu verjanda Lárusar Welding um að fresta ákæru í málinu þangað til botn fæst í önnur mál hjá sérstökum saksóknara þar sem hann er grunaður um refsiverða háttsemi. Þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var aðaleigandi bankans, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson, fyrrverandi starfsmenn Glitnis, eru ákærðir fyrir umboðssvik vegna sex milljarða króna láns sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. vorið 2008, til kaupa hlutabréf í Aurum Holdings af Fons, fjárfestingarfélagi Pálma Haraldssonar, en FS38 ehf. var dótturfélag Fons. Fram kemur í 56.gr. sakamálalaga að lögregla taki saman skýrslu um rannsókn í hverju máli um sig þar sem getið skal einstakra rannsóknaraðgerða og niðurstöðu þeirra. Verjendur ákærðu í málinu telja að sú skýrsla sem sérstakur saksóknari lagði fram í málinu gangi mun lengra en fyrirmæli laganna og sé í raun dæmi um skriflegan málflutning, sem gangi í berhögg við þá meginreglu að málflutningur í sakamálum skuli vera munnlegur. Af þessum sökum beri að hafna framlagningu skjalsins. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, sagði að skýrslan væri andstæð leiðbeiningum Hæstaréttar í nýlegum dómum. Hann sagði slæmt fyrir réttarkerfið almennt ef saksóknarar kæmust upp með að leggja fram skýrslur af þessu tagi athugasemdalaust. „Afleiðing þess að dómstólar hafi ekki eftirlit með þessu er sú að málflutningur í sakamálum færist yfir í skriflegan málflutning," sagði Gestur. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, andmælti þessu og sagði að ákæruvaldið hefði mat um innihald þessara skýrslna og þá hefði ákæruvaldið almennt mat um það hvaða skjöl þyrfti að leggja fram. Sönnunarmatið væri á hendi dómara og eftir atvikum gætu verjendur borið brigður á sönnunargögn síðar í málsmeðferðinni.Með réttarstöðu sakbornings í 12 málum og hefur lagt út tugi milljóna króna í málskostnað Óttar Pálsson, verjandi Lárusar, fór fram á að ákæru yrði frestað. Við málflutning um þessa kröfu í morgun sagði Óttar að Lárus væri með réttarstöðu sakbornings í 12 málum hjá sérstökum saksóknara. Málin snerust flest um lánveitingar þar sem Lárusi væri gefið að sök hafa stefnt fé Glitnis í hættu, rétt eins og í Aurum-málinu. Í engu þessara mála væri Lárusi gefið að sök að hafa aflað sjálfum sér persónulegs ávinnings. Óttar sagði það rétt Lárusar samkvæmt sakamálalögum að um þessi mál væri fjallað í einu lagi og því bæri að fresta ákærunni. Hann sagði að kostnaður Lárusar af málsvörnum í einka- og sakamálum eftir hrunið hlypi samtals á tugum milljóna króna. Bæði væri það kostnaðarsamt að taka til varna í mörgum ólíkum málum og þá kynnu varnir í einu máli að hafa áhrif á varnir í öðru. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði að rannsóknum í þessum tólf málum væri ekki lokið og óvíst hvort þeim myndi ljúka með útgáfu ákæru.Eru þessi mál öll vegna lánveitinga þar sem grunur leikur á að fé bankans hafi verið stefnt í hættu? „Þessi mál öll tengjast starfi Lárusar fyrir Glitni, en ég get ekki farið í að skilgreina nákvæmlega um hvað þessi mál eru," segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari í viðtali við fréttastofu að loknu þinghaldi.Mun rannsóknum í þessum málum ljúka á þessu ári, eins og verjandi Lárusar nefndi? „Það er áætlun embættisins að ljúka þessum rannsóknum á þessu ári, en það eru settir allir fyrirvarar við það. Rannsóknir hafa haft þá tilhneigingu að dragast eilítið á langinn, en þetta er það markmið sem við höfum sett okkur." Dómari í málinu mun í næstu viku úrskurða um kröfur verjenda annars vegar um framlagningu rannsóknarskýrslu og hins vegar frestun ákærunnar. thorbjorn@stod2.is
Aurum Holding málið Mest lesið Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Innlent Nafn stúlkunnar sem lést Innlent Eyða ekki tíma í að eltast við sögusagnir Innlent Bjarni segir brottvísunina standa Innlent Lífvarðaþjónustan segist meðvituð um tíst Musk um Biden og Harris Erlent „Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“ Erlent Telur litlar líkur á að Yazan verði vísað úr landi Innlent Bjóst ekki við því að þurfa á svartri vinnu að halda í ellinni Innlent Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Innlent Viðurkennir að hafa ekki haft heimild til að stíga inn Innlent Fleiri fréttir Banaslys á byggingarsvæði í Árborg Tók rúmlega ár að fá „nei“ við einfaldri fyrirspurn Spenna innan ríkisstjórnarinnar og mannskæðir gróðureldar Hvorki verið að fylgja fólki né fara með það heim Eyða ekki tíma í að eltast við sögusagnir Fresta leitinni að Illes Sex ferðamenn festust í helli við Reynisfjöru Sárnar hvernig fjölskyldunni bárust tíðindin hörmulegu Nafn stúlkunnar sem lést Til rannsóknar hvar stúlkan var myrt „Langveikt barn í hjólastól peð og fórnarlamb átaka við ríkisstjórnarborðið“ Telur litlar líkur á að Yazan verði vísað úr landi Sigmundur segir fjölmenningastefnuna komna í þrot Brýnt að finna þyrluflugi nýjan samastað Bein útsending: Málþing um sjúklingaöryggi Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Óráðlegt að undirbúa flutning barns sem dvelur á sjúkrahúsi „Ég hótaði ekki stjórnarslitum“ Vandræðalegt að fylgjast með svörum ráðherra Segir lögin skipta máli en líka mannúð „Þó að það hafi verið mér þvert um geð“ Brottvísun Yazans mótmælt á meðan ráðherrar funda Segir Vinstri græn hafa þröngvað Guðrúnu til lögbrots Bjarni segir brottvísunina standa „Þetta er ekki bara pjatt“: Segir eftirlits þörf með gráum markaði með snyrtivörur Læknir hafi metið Yazan flugfæran Yazan mjög verkjaður og faðir hans brákaður „Við viljum þetta ekki“ Notuðu sönginn til að mótmæla vegna Yazan Leitin að Illes bar ekki árangur í nótt Sjá meira